Beast of The East - Jökulsá Austari

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
300 ISK
Open the calendar popup.
2
12990 ISK
85,73 EUR
ISK
85,73 EUR
Shopping Cart
Total: 0 ISK
0,00 EUR
Bookmark and Share

Rafting á Austari Jökulsá

Austari Jökulsá í Skagafirði er tvímælalaust ein besta rafting á í Evrópu enda á erfiðleikastiginu 4+ af 5 mögulegum.

Jökulsáin ryður sér leið í gegnum Austurdal og er hún umvafin gljúfri sem er landsþekkt fyrir að vera einstaklega fallegt. Það er svo sannarlega auðvelt að gleyma sér í því að dást að þessu fallega landslagi en líklegt er að öskrin, skrækirnir og hláturinn í vinum þínum minni þig á næstu flúð.

Austari Jökulsá er ekki fyrir fólk með lítið hjarta enda er 18. ára aldurstakmarið í ánna. Áin tekur á móti þér með kraftmiklum drunum og fossandi flúðum.  Það eina sem kemur til með að renna hraðar en áin verður adrenalínið í æðunum þegar við dúndrum á hverja flúðina á fætur annari. Þú átt eftir að öskra úr þér lungun í "Screaming lady", verða orðlaus í "Lost", biðja um miskunn í "Græna herberginu" og horfast í augu við ótann í 8 metra háu kletta stökki ofan í ána (þetta er ekki skylda og fer eftir aðstæðum í ánni hverju sinni).  Við náum okkur svo niður úr adrenalínvímunni með því að fljóta og synda niður með ljúfum straumum þar sem Jökulsá Austari og Vestari mætast þar til við komum að endastöðinni.

Mælt er með því að þátttakendur hafi einhverja reynslu af flúðasiglingum eða hafi mjög mikla ævintýraþrá!

Arctic Rafting býður upp á eins dags siglingu niður Austari Jökulsá sem heitir Beast of the East.

Í Beast of the East eru staðfestar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur frá 1. maí - 31. ágúst. Frá 15. apríl - 1. maí og  1. september - 1. október þarf lágmark 4 þátttakendur í hverja siglingu.

Nú er einnig í boði þriggja daga rafting leiðangur á Jökulsá Austari, River Rush. Ferðin hefst upp á hálendi við rætur Hofsjökuls og endar á sama stað og eins dags siglingin endar. Þetta er sannkallað ævintýri enda óumdeilanlega flottasta flúðasigling sem Ísland hefur uppá að bjóða og hápunktur flúðasiglinga Arctic Rafting.

Ævintýrið hefst á því að aka frá Reykjavík eða Akureyri til Varmahlíðar norður í Skagafirði. Þaðan förum við af malbikinu á fjallveg sem liggur í átt að Sprengisandi. Þar ökum síðan í átt að hinni víðfrægu Austari Jökulsá við Hofsjökul.  Fyrstu nóttinni er eytt í notalegheitum í skálunum í Laugafelli  þar sem við getum slakað á í heitum laugum og notið fegurðar hálendisins í miðnætursólinni. Morguninn eftir dembum við okkur í adrenalínpakkaða tveggja daga flúðasiglingu í gegnum allar siglanlegar flúðir í bestu flúðasiglingaá Íslands. Á meðan á ferðinni stendur kemstu að því að þér hefur verið sökkt í afskekkta og óspillta náttúru sem ekki væri hægt að nálgast öðruvísi en á bát. Það eina sem kemur til með að renna hraðar en áin verður adrenalínið í æðunum þegar við dúndrum á hverja flúðina á fætur annari.

Í River Rush eru staðfestar brottfarir fyrir minnst 4 þátttekndur alla þriðjudaga frá 22. júní - 31. ágúst.

Click here for English