Hvítá er falleg og fjörug á í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, og við höfum nú í 20 ár starfrækt vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bækistöðvum okkar þar, Drumboddsstöðum eða "Drumbó". Siglingin sjálf er 7 kílómetra leið í gegnum falleg gljúfur og margar mismunandi flúðir. Flúðasiglingarnar á Hvítá henta öllum og vegna þess hversu nálægt Gullna hringnum áin er hefur hún orðið geysivinsæll áfangastaður. Siglingin sjálf byrjar við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið í gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er meðfram stuðlabergi og sérstæðum bergmyndunum og í Brúarhlöðum er tekið stutt hlé þar sem hver sem vill getur stokkið fram af kletti ofan í ána. Þessi sigling er skemmtileg og fjölbreytt og hentar fyrir alla sem eru í ævintýraleit!
...............
Click here for English