Shopping Cart
Total: 0 ISK
0,00 EUR
Bookmark and Share

Starfsstöðvar Arctic Rafting

Arctic Rafting byggir á yfir 25 ára langri reynslu á flúðasiglingum víðsvegar um landið. Nú bjóðum við upp á siglingar á gúmmíbátum og kanóum í mörgum af skemmtilegustu ám landsins en þar ber helst að nefna Hvítá á suðurlandi og Jökulsá Vestari og Jökulsá Austari á norðurlandi.

Bækistöðvarnar við Hvítá, sem hefur verið ein vinsælasta á landsins í mörg ár, eru Drumboddsstaðir (Drumbó) fyrir neðan Gullfoss og Geysi en þaðan er boðið upp á daglegar raftingferðir á sumrin. Hafgrímsstaðir eru nýju bækistöðvarnar okkar í Skagafirði á norðurlandi en þar er gert út í hinar alræmdu Jökulsá Austari og Jökulsá Vestari.

Click here for English