Arctic Rafting er íslenskt ævintýra og afþreyinga fyrirtæki sem var stofnað árið 2005 en byggir á fornum grunni og reynslu við skipulag á fjölbreyttum ferðum hérlendis. Hjá fyrirtækinu vinnur skemmtilegur og öflugur hópur fólks sem fer sístækkandi en þessi hópur á það sameiginlegt að búa að mikilli reynslu á ferðamennsku hérlendis og erlendis og vilja til að deila reynslu sinni og þekkingu með öðrum. Starfsemi fyrirtækisins, sem hefur hægt og rólega bætt við fleiri ferðum í gegnum árin, teygir sig nú út um allt landið og afþreyingamöguleikarnir sem í boði eru nánast ótakmarkandi. Það er einlæg von Arctic Rafting að geta sýnt fólki Ísland í nýju ljósi og gera fríið að ógleymanlegu ævintýri í sátt og samlyndi við einstaka náttúru landsins.
Arctic Rafting byggir á yfir 25 ára langri reynslu á flúðasiglingum víðsvegar um landið. Nú bjóðum við upp á siglingar á gúmmíbátum og kanóum í mörgum af skemmtilegustu ám landsins en þar ber helst að nefna Hvítá á suðurlandi og Jökulsá Vestari og Jökulsá Austari á norðurlandi. Bækistöðvarnar við Hvítá, sem hefur verið ein vinsælasta á landsins í mörg ár, eru
Drumboddsstaðir (Drumbó) fyrir neðan Gullfoss og Geysi en þaðan er boðið upp á daglegar raftingferðir á sumrin.
Hafgrímsstaðir eru nýju bækistöðvarnar okkar í Skagafirði á norðurlandi en þar er gert út í hinar alræmdu Jökulsá Austari og Jökulsá Vestari.
Okkar vinsælustu ferðir í gegnum árin, ástamt rafting ferðunum, er
snorkeling og
köfun í Silfru á Þingvöllum og
jökulgöngur og
ísklifur á Sólheimajökli. Silfra er hreint út sagt magnaður staður sem enn er leyndur flestum Íslendingum en staðurinn hefur hlotið heimsfrægð fyrir tandurhreint vatnið og magnað útsýnið á mökum heimsálfanna tveggja. Sólheimajökull er önnur perla í náttúru landsins sem fáir íslendingar hafa komist í snerti við en hann er einn af lengstu skriðjöklum landsins og skríður út Mýrdalsjökli á suðurlandi, heimili Kötlu einu öflugasta og virkasta eldfjalli landsins.
Ofan á þetta býður Arctic Rafting upp á fjöldann allan af annars konar ferðum fyrir einstaklinga og hópa af öllum stærðum og gerðum og sérsniðnar hvataferðir fyrir
skóla og
fyrirtæki. Þar ber helst að nefna
gönguferðir eins og
jöklagöngur og
háfjallaferðir á ýmis fjöll og tinda landsins,
skíða- og snjóbrettaferðir,
ís- og
klettaklifurferðir,
hellaferðir,
sjókayakferðir, jeppaferðir,
köfunarferðir,
fjórhjólaferðir,
snjósleðaferðir og
leikjaferðir. Með því að skoða vefsíður
Arctic Rafting og
Arctic Adventures er hægt að skoða allar
sumar- og
vetrarferðir og
dags- og
pakkaferðir sem í boði eru. Einnig hvetjum við þá sem vilja láta setja saman fyrir sig sérstaka ferð að hafa samband og munum við gera okkar besta til að verða við þeirri ósk.
Click here for English