Rafting á Vestari Jökulsá í Skagafirði
Þessi ferð er á erfiðleikastiginu 2+ af 5 mögulegum
Ævintýraferðir eru frábær leið til að tengja fólk saman og dýpka vináttu. Að heyra um ævintýri og þjóðsögur árinnar á meðan þið njótið spennu flúðasiglinganna er bæði skemmtileg og lærdómsrík reynsla fyrir alla fjölskylduna. Við hjá Arctic Rafting gerum okkur fulla grein fyrir nauðsyn þess að skapa eftirminnileg ævintýri fyrir bæði börn og fullorðna sem vilja deila ógleymanlegri og skemmtilegri upplifun.
Fjölskylduferðin okkar í Vestari Jökulsá liggur í gegnum yfirþyrmandi og töfrandi gljúfur og er ein af okkar fallegustu og skemmtilegustu ferðum! Ferðin hefst á Hafgrímsstöðum þar sem við byrjum á því að úthluta þátttakendum nauðsynlegan búnað og veitum aðstoð ef þess þarf. Frá Hafgrímsstöðum förum við saman í um það bil 15 mínútna rútuferð inn Vesturdal þar sem ævintýrið hefst með því að fara yfir öryggisatriði og hvernig eigi að beita sér í ánni.
Þaðan leggjum við af stað niður ána, siglum í gegnum fallegt landslag Vesturdals og fljótum inn í töfrandi Jökulsárgljúfrin. Á leiðinni búum við okkur til heitt kakó með vatni sem sýður rétt við árbakkann. Þú gætir ákveðið að fleygja þér fram kletti ofan í ána, fara í vatnsslag eða kannski nýtur þú þess bara að fljóta niður ána og nýtur gullfallegs útsýnisins í gljúfrinu.
Það eru staðfestar brottfarir fyrir minnst 2 þátttakendur frá 1. maí - 31. ágúst:
Frá Skagafirði:
-Hafgrímsstaðir: Ferðir eru daglega kl. 10:00.
-Varmahlíð: Ferðir eru daglega kl. 9:30.
Frá Reykjavík:
Ferðir eru daglega kl 8:30 og kl. 17:00 frá BSÍ rútustöðinni í Reykjavík.
Frá Akureyri:
Ferðir eru daglega kl 8:30 frá SBA rútustöðinni á Hjalteyrargötu 10.
* Í öllum ferðum frá Reykjavík þarf að gera ráð fyrir gistingu í Varmahlíð eða á bæjum í kring. Siglingin hefst kl 10:00 morguninn eftir og rútan til baka til Reykjavíkur fer kl 18:20 eða áfram til Akureyrar kl 21:50.
Nánari upplýsingar:
Verð: Sjá bókunarkassa að neðan.
Ferð frá Reykjavík:
Innifalið í verði er akstur frá BSÍ rútstöðinni í Reykjavík, tveggja tíma hestaferð í Skagafirði, ein nótt á gistiheimili í Varmahlíð, grill eftir siglinguna og akstur aftur til Reykjavíkur:
44.990 ISK.
Ferð frá Akureyri:
Innifalið í verði er akstur frá SBA rútustöðinni á Akureyri, tveggja tíma hestaferð í Skagafirði, hádegisverður, grill eftir siglinguna og akstur aftur til Akureyrar kl 21:55 :
29.990 ISK.
Vegalengd frá Reykjavík: 294 kílómetrar.
Lengd ferðar: 5-6 klst.
Þátttaka: Minnst 2 þátttakendur frá 1. maí til 31. ágúst. Minnst 4 þátttakendur frá 15. apríl til 1. maí og frá 1. september til 1. október. Mest 40 manns í hverja ferð.
Aldurstakmark: 12 ára.
Takið með ykkur: Hlýja peysu og buxur, sundföt, föt til skiptanna og handklæði.
Annað: Handklæði: 300 ISK. Vatnsheld myndavél: 3.000 ISK
Samningsákvæði: Allar flúðasiglingar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins staðfesta þátttakendur að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.
Click here for English.